Velkomin í heimsókn til okkar :)
Við erum flottustu bræðurnir og heitum Valdór Liljendal og Arnar Liljendal.


Nýjar myndir í tveimur albúmum 19/11!!! Munið gestabókina :)

Valdór Liljendal kom í heiminn kl. 03:49 þann 9. október 2004 á sjúkrahúsinu í Glostrup, Danmörku. Hann vóg 3300 gr og var 52 cm langur, með mikið dökkt hár.

Arnar Liljendal kom í heiminn kl. 08:53 þann 19. janúar 2007 á sjúkrahúsinu í Glostrup, Danmörku. Hann vóg 3430 gr og var 53 cm langur og líka með fullt af dökku hári.




Annað:



PABBI ER MAÐURINN.... Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI!!!


MAMMA ER KONAN........... Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!
Þú ert gestur nr. 31739